Léttar spurningar:)
8. Hefuru heyrt einhverja kjaftasögu um mig nýlega?
7. ein settning eða orð sem lýsir mér...
Hér er svona pínu spurningar sem er gaman að svara, svo endilega svarið þeim elskurnar mínar;)
Og já eitt enn, ÉG Á AFMÆLI EFTIR 1 DAG..... ÉG VERÐ 20 ÁRA EFTIR 1 DAG!!!!!!!!! Ég er varla að trúa því að það sé komið að þessu:)
BRJÁLUÐ SÆKIND OG BABÚSKA.....

Kominn vetur!!
Lífið eftir Laugar....
Jæja ég held að ég skuldi ykkur eitt stykki blogg!!! Veit að ég hef ekki verið dugleg við að blogga upp á síðkastið en í sannleika sagt þá hef ég bara ekki nennt að blogga!!! Er búin að vera upptekin við að gera eitthvað allt annað í allt sumarJ
En hvað hefur verið að gerast í mínu lífi síðan ég bloggaði síðast??? Alveg heilan helling skal ég segja ykkur..
* Útskrifaðist frá Laugum 25 maíJ
* Hélt rosa flotta útskriftaveislu á Sjónarhóli hjá bróður mömmu og hún endaði í sauðburði og tvö lömb komu og þau fengu nöfnin Bjartur og Stúdentinn…
* Kom heim til Rvk og byrjaði að vinna hjá ÍTR á Róló.
* Komst inn í Háskóla Íslands í sálfræði…..
* Djammaði heilan helling í sumar!!!!!!!!
* Fór til Hólmavíkur á Hamingjudaga!!!
* Fór til Danmerkur í 10 daga að versla og djammaJ
* Kom heim og fór að vinna aftur í 4 daga, frí í 4 daga og ætla síðan að fara að vinna á frístundarheimili í vetur með skólanum;)
* NÁÐI BÓKLEGA BÍLPRÓFINU!!!!!!!!!
* Keypti mér Macbook ferðatölvu.
* Skólinn byrjar 3 sept og þangað til ætla ég bara að chilla og vinna!!!!
Kem líklega norðu 7 sept þannig að ég kíkji á ykkur sem verða á Laugum;)
Jæja þetta var sumarið mitt í hnotskurn og ég vona að þeir sem hafa biðið lengi eftir bloggi frá mér (sérstaklega Nína Matthildur) verði núna loksins ánægðir;) Ég er líka að vinna í því að sitja myndir inná netið svo þetta er allt að koma;)
Ég skal reyna að vera dugleg að blogga svo þið vitið nú hvað Anna Kúrí ykkar sé að gera af sér;)
Þangað til næst elskurnar……
Páskafrí 2007
Ég verð bara að segja það að þetta var BESTA páskafrí sem ég hef upplifað!!! Það var svo gaman hjá mér að það var ekki eðlilegt... Ég var alltaf að gera eitthvað skemmtilegt, annað hvort með vinum mínum eða fjölskyldu!!!
En það var étið svo mikið yfir páskana að það var ekkert eðlilegt. Ég var alltaf í veislum eða matarboðum! Síðan var fermingin hans Kristjáns Orra og það var svo mikill afgangur af fylltum kalkúnabringum að það var étið alla vikuna og djöfull var það gott!!! Ég og mútter höfum ákveðið að hafa svona í útskriftinni minni og líka flottar tertur!!! Ætlum að gera þetta með stæl sko;) ekki á hverjum degi sem að maður útskrifast;)
En já áfram með hvað ég gerði um páskana!!! Ég fór á djammið all nokkrum sinnum en ég datt bara 2 sinnum í það;) hehehehe;) ég fór í afmæli til Dönu á föstudeginum og það var bara hevý næs!! Gat samt ekki verið lengi þar sem ég þurfti að vakna kl 8 morguninn eftir til þess að fara í fermingu! En sama dag og ferming var fór ég á árshátíð hjá Mömmu með Óla og Danna og það var geggjað gaman!! Fór síðan eftir árshátíðina að hitta Kristínu og co og það var bara mjög gaman!! Síðan var eigilega bara chillað þangað til á miðvikudeginum en þá fór ég á Freddy le Grand og það var bara allt í lagi!!! Fékk samt svo geggjaðan hausverk við það að hlusta alltaf á sama taktinn að ég nennti ekki að vera lengur en til 4!! Þá fór ég heim að lúlla mér;)
Á föstudeginum þá var langaði mig að djamma með sólu og sædísi en það endaði með því að ég djammaði bara með sædísi og sigga og vinum hans!! Það bara munaði ekkert um það en það var bara hringt í mig og sagt við mig að það væri verið að koma að sækja mig til þess að ég kæmist í partýið þar sem þau voru;);) Við fórum á Papaball á Players og það var geggjað gaman!!! Síðan var bara farið niður í bæ og við fórum á Q bar og ég man því miður lítið eftir því en síðan fór maður bara heim að lúlla sér;););););)
En síðan var bara chillað eitthvað það sem var eftir af páskafríinu nema kannski á páskadagsdjamminu;);) nenni nú ekki að fara að segja frá því;);)
En svona var páskafríið mitt í hnotskurn og þetta var bara frábært í alla staði;)
En núna vil ég fara að sjá komment hérna á síðunni annars er ég varla að nenna að halda áfram að vera með þessa síðu ef að enginn les hana;)
En farið vel með ykkur elskurnar og hver dagur skiptir máli því maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér;);*;*
Kv
Anna Björt;*;*
Ég og Heiða mín;*;*
Ég og Steini;*;*
Sædís og Siggi;*;*
Kristín og ég;*;*
Páskafrí,fermingar og útskrift:)

Jæja elskurnar mínar þá er helgin að baki og var þetta bara hin ágætasta helgi skal ég segja ykkur!!! Ég og Ella ákváðum að skella okkur á Rembuna, sem er sýnd í Laugabæ, og var þetta bara hin ágætasta sýning!!! Náði allan vegan að skella upp úr nokkrum sinnum... Síðan þurftum við endilega að detta í það!!! Ástandið á mér;);) heheheh!!! Svo þurftu flest allir að fara á ak og var mér boðið með en ég afþakkaði það(sem var btw mjög sniðugt hjá mér!!). Þá vorum við Ella,Jakob og Hjalti eftir upp í Laugabæ!! Við fórum heim til Hjalta og vorum þar eitthvað blindfull og mér tókst næstum því að eyðileggja ísskápin hans Hjalta en þetta bjargaðist allt;) Nenni varla að segja meira frá þessu kvöldi en þetta var fínt kvöld fyrir utan minn biturleika á því að komast ekki á ball í Ýdölum!!!!! Og já ég dó líka upp í herberginu mínu eftir að hafa komist í nammigottið hennar Ellu,hahahah!!!!!!
Svo er bara að koma páskafrí á föstudaginn og fer ég með Eyþóri í bíl suður og vonandi verður það hin fínast ferð hjá okkur!! Það var gaman síðast svo ég efastum að þetta verði eitthvað boring!!!!
Síðan er Dana gella búin að bjóða mér í afmælið sitt á föstudaginn og ætla ég nú að mæta og fá mér nokkra kannski en ég þarf samt að fara snemma heim þar sem litli bróðir minn er að fara að fermast á laugardagsmorguninn og er kirkja kl 10 um morguninn!!!!! Veislan byrjar nú ekki fyrr en um 5 leytið seinnipartinn og verður þetta heljarinnar matarveisla!!! Einnig verður harmonikkuleikari og alles þannig að þetta verður gaman!!!
Síðan verð ég að fara að plana næstu veislu en það er útskriftin mín!!!!! Útskriftardagurinn er 25 maí á Laugum og hlakka mig geggjað mikið til!!! Loksins er þetta að verða búið, LOKSSSSSINNNSSS!!!!!!!!
En held að þetta sé nóg í bili, þangað til seinna
Adíós lovelís;*;*;*

Suðurferð og stuff....

Úfff maður fer af Laugum í viku og missir bara algjörlega af öllu!!! En ég fékk allt beint í æð þegar ég kom á sunnudeginum....
En síðustu viku þá fór ég suður þar sem ég var búin í prófum á þriðjudeginum sem var bara very næææss;);) en ég kom heim og chillaði bara og slakaði á eftir prófinu og já ég náði ÖLLUM prófunum sem ég fór í JJ ekkert smá stoltJ en amma var í heimsókn svo ég var að dúllast með henni eitthvað og labba með hana um Rvk!!!
Síðan á fimmtudeginum fór ég á kaffihús með Sólu minni og við spjölluðum og svona næs!! En þegar við fórum á Oliver varð allt vitlaust!!!hehehe það kom einhver Portúgali og byrjaði að tala við okkur og spurði hvort við vildum sitjast hjá honum og vini sínum en við sögðumst koma eftir smá því við værum að spjalla saman og svona!! En hann kom alltaf aftur til okkar og byrjaði að spjalla! Okey´síðan ákváðum við nú að setjast hjá karlpungunm! En haldið ekki bara að gaurinn byrji að reyna við mig á fullu!! Sagði meira að segja hluti sem mér finnst allt ekki viðeigandi! En síðan vildi Sóla fara og spurði hvort að ég vildi ekki verða eftir hjá þeim og ég bara nei ég kem með þér sko!!! EKKI FRÆÐILEGUR MÖKULEIKI Á ÞVÍ AÐ EINHVER SKILJI MIG ETIR MEÐ SVONA GAURUM!!!!!! NEI TAKK FYRIR!!!hahahahaha
En svo á föstudeginum var afmæli hjá bróður hennar sólu og bauð hún mér með sér þangað. Við ætluðum nú ekki að drekka mikið, bara aðeins að sötra, en það fór á annan veg þar sem það var frítt áfengi þarna!!!!!!! Auðvitað þurftum við þá að hella í okkur!!!! En sem sagt við vorum þarna í þessu afmæli til svona 1 og þá var bara skellt sér upp í leigubíl og farið á Players þar sem Sálin var að spila!! Við þurftum nú að bæta okkur þar sem við misstum eigilega af Sálinni á áramótunum vegna drykkju og of mikils fólks á Brodway!!!! En við dönsuðum sko alveg heilan helling en svo þurfti ég endilega að finna til í löppinni minni þannig að ég settist bara niður aðeins og slakaði á og á meðan fór Sóla á dansgólfið með Köllu kjellu;)
En við vorum þarna þangað til lokaði og þá lá leiðin bara niður í bæ!!!!!!!! Við skelltum okkur á MESTA rónabar í bænum þar sem við fengum ekkert að fara inn þar sem verið var að loka öllu!!! Já við sem sagt fórum á Amsterdam og vorum þar þangað til ég veit ekki hvenær og dönsuðum fullt og drukkum meira!!! Jæja þá átti bara eftir að skella sér heim sem tók nokkurn tíma þar sem við stoppuðum í 10/11 ( já það var búið að opna 10/11 í miðbænum þegar við vorum á leiðinni heim) og fengum okkur að borða!!! Við hittum götusópara og spjölluðum við hann!! En síðan fórum við bara heim og skemmtum okkur konunglega þar og tókum alveg helling af myndum;) en TOPPURINN á þessu kvöldi var náttsamfestingurinn sem Sólrún Sigríður fann inni í skáp hjá mér!!!!bwhahahahhahaha bara alltof fyndið!!!!
Við fórum síðan loksins að sofa en sváfum nú voða lítið, við vöknuðum fullur!!!!! Ég tók mig til og bakaði þessar dýrindis pönnukökur, beikon og egg sem ég, sóla og hildur ósk borðuðum með bestu list!!!!!
En um kvöldið fór ég drulluþunn í matarboð hjá pabba og þurfti ég að hlusta á litla frænda minn berja potta og pönnur í sirka 20 mín og ég var að verða GEÐVEIK!!!!!! Shit hvað barnið mitt fær sko ALLS ekki að koma nálægt pottum og pönnum!!!!!! En um kvöldið kíkti ég í bíó á Number 23 með honum Óla og þetta var snilldar mynd!!!! Snilldar plott og allt......
En síðan var bara lagt af stað á Lauga á sunnudeginum og fór ég með Eyþóri í bíl og það var bara mjög næsJJ En þegar maður kom á Lauga fékk maður bara allt í æð!!! Friðgeir minn lenti í slysi um helgina og ég vona ég svo innilega að honum líði vel eftir aðstæðum og viti það að við ÖLL hugsum til hans og hlökkum til að hitta hann þegar hann kemur til baka:*:*:*:* Love jú elskan;*
En svo er bara ýmislegt annað búið að gerast!!! Nenni ekki að ræða það hér:P
Síðan núna um næstu helgi mun ég taka þátt í Tónkvíslinni sem er söngvakeppnin hér í skólanum og er ég bara að æfa mig á fullu fyrir hana!!! Smá stress komið í mann en ég held að þetta fari bara allt vel![]()
Já svo setti ég líka myndir inná myndasíðuna mínar!!! Myndir síðan úr afmælinu hennar Kristínar minnar og líka myndir af suðurferðinni![]()
En elskurnar farið vel með ykkur og endilega kommentið;) Þykir vænt um ykkur öll elsku vinir mínir:
Anna Björt:*
Ég og Sóla:*
Sóla mín:*:*
Ég og Kristín mín þegar hún hélt upp á afmælið sitt:*
Dóterí;)
Það er nú ósköp lítið að frétta!!! er að fara suður á morgun þar sem ég er búin í prófum og er í 6 daga fríi sem er VERYYYY NICCE
Ætla bara að chilla heima og hitta stelpurnar mínar og familýuna;*;*;* Það verður örugglega kíkt á djammið þar sem ég djammaði ekkert helgina sem var að líða.....En hey ég var að gera svona skemmtilegt próf sem mér finnst að þið ættuð ÖLL að taka;);) http://www.quizyourfriends.com/quizpage.php?quizname=070305180252-137321&
En ég er að vinna í því að sitja myndir úr afmælinu hennar Kristínar minnar, hef ekki haft tíma í það útaf svo miklum lærdómi og prófum....
En ég nenni varla að skrifa meira, geri það þegar ég hef eitthvað bitastætt um heimferðina mína;);)
Farið vel með ykkur elskunar mínar:*:*:*:*
Love
Anna Björt Kúrí;););)
Þorrablót,djamm og löng helgi:)
En um helgina sem var að klárast þá var nú lítið gert á föstudeginum!!! Ég og Eyþór ætluðum inná á ak en við fundum bara engan driver, sem sökkaði BIG TIME því mig langaði að fara á djammið með Nínu og Sigrúnu!!! En við vorum bara heima í staðinn og horfðum á DVD allt kvöldið þangað til við fórum að sofa
En næstu helgi þá er langa helgin og hlakka ég geggjað mikið til!!!! Eini gallinn við þetta allt saman er að Sóla er á vertíð í Vestmannaeyjum og mun ég þá ekki hitta hana og síðan er Heiða upp í bústað alla helgina!!!!!
En ég segi þetta gott í bili!!! farið vel með ykkur elskurna og ENDILEGA kommentið

Ég og Sædís mín:*:*:*

Ég og Krisín mín:*:*:*
Afsakið bloggleysið í mér:(
Oky ég vil biðja alla þá sem lesa þessa síðu afsökunar á bloggleysinu mínu þessa undanfarna mánuði! Er bara ekki búin að vera í stuði til þess að blogga!!
En það sem er svona aðalega að frétta af mér er að ég er komin aftur á Lauga og skólinn er bara byrjaður á fullu og auðvitað djömmin líka;) Ég er búin að fara suður í afmælið til Sólu minnar og það var ÆÐISLEGTJJJ Það var djammað allsvakalega þá helgi og mér finnst afmælið hafa heppnast alveg FRÁBÆRLEGA
Takk fyrir mig Sóla mín:*:*:*
En svo var það bara skólinn en síðustu helgi þá fórum við hópurinn til Raufarhafnar á Þorrablót og það var GEGGJAÐ
Þetta var bara ólýsanlegt og svo gamanJ Ég nenni ekki að telja alla upp sem fóru á blótið en við vorum held ég í kringum 20 sem komum frá Laugum og svo náttlega elskurnar sem buðu okkur:*:*:* En við vorum sem sagt með íbúð og sumir byrjuðu að drekka þegar lagt var af stað frá Laugum en ég ákvað að byrja að drekka um 17:30
Síðan byrjuðum við stelpurnar bara að mála okkur og gera okkur fínar og það tók sinn tímaJ En síðan byrjaði bara drykkjan
Það var stanslaust partý,gítarstemmning, spjalla og smá holdsýning 

bara fyndið;) En síðan var bara komið að því að skella sér á ballið sem var ÓTREÚLEGA skemmtilegt ball... Hef sjaldan skemmt mér jafn vel!!! Þessi sveitaböll eru náttlega bara BEST... Síðan var bara haldið heim með ýmsum áföllum sem ég nenni ekki að tala um:P
Daginn eftir tók við ótrúlega leiðinleg þynnka en þess virði að takast á við hana!!! Síðan var komið að því að taka til í íbúðinni og ganga frá sem tók sinn tíma!!! Síðan var bara lagt af stað heim og ég svaf nú alla leiðina til Húsavíkur sem var gott!!!
Ég er búin að sitja nokkrar myndir á þessa síðu en er að vinna í því að sitja myndir á http://www.picturetrail.com/annabjort_1 þar eru einnig myndir frá afmælinu hennar Sólu
En núna er komið nóg í bili og ég mun vonandi bæta mig í þessu bloggleysi mínu;) En góða nótt elskurnar mínar og farið vel með ykkur:*:*:*
