Páskafrí 2007
Ég verð bara að segja það að þetta var BESTA páskafrí sem ég hef upplifað!!! Það var svo gaman hjá mér að það var ekki eðlilegt... Ég var alltaf að gera eitthvað skemmtilegt, annað hvort með vinum mínum eða fjölskyldu!!!
En það var étið svo mikið yfir páskana að það var ekkert eðlilegt. Ég var alltaf í veislum eða matarboðum! Síðan var fermingin hans Kristjáns Orra og það var svo mikill afgangur af fylltum kalkúnabringum að það var étið alla vikuna og djöfull var það gott!!! Ég og mútter höfum ákveðið að hafa svona í útskriftinni minni og líka flottar tertur!!! Ætlum að gera þetta með stæl sko;) ekki á hverjum degi sem að maður útskrifast;)
En já áfram með hvað ég gerði um páskana!!! Ég fór á djammið all nokkrum sinnum en ég datt bara 2 sinnum í það;) hehehehe;) ég fór í afmæli til Dönu á föstudeginum og það var bara hevý næs!! Gat samt ekki verið lengi þar sem ég þurfti að vakna kl 8 morguninn eftir til þess að fara í fermingu! En sama dag og ferming var fór ég á árshátíð hjá Mömmu með Óla og Danna og það var geggjað gaman!! Fór síðan eftir árshátíðina að hitta Kristínu og co og það var bara mjög gaman!! Síðan var eigilega bara chillað þangað til á miðvikudeginum en þá fór ég á Freddy le Grand og það var bara allt í lagi!!! Fékk samt svo geggjaðan hausverk við það að hlusta alltaf á sama taktinn að ég nennti ekki að vera lengur en til 4!! Þá fór ég heim að lúlla mér;)
Á föstudeginum þá var langaði mig að djamma með sólu og sædísi en það endaði með því að ég djammaði bara með sædísi og sigga og vinum hans!! Það bara munaði ekkert um það en það var bara hringt í mig og sagt við mig að það væri verið að koma að sækja mig til þess að ég kæmist í partýið þar sem þau voru;);) Við fórum á Papaball á Players og það var geggjað gaman!!! Síðan var bara farið niður í bæ og við fórum á Q bar og ég man því miður lítið eftir því en síðan fór maður bara heim að lúlla sér;););););)
En síðan var bara chillað eitthvað það sem var eftir af páskafríinu nema kannski á páskadagsdjamminu;);) nenni nú ekki að fara að segja frá því;);)
En svona var páskafríið mitt í hnotskurn og þetta var bara frábært í alla staði;)
En núna vil ég fara að sjá komment hérna á síðunni annars er ég varla að nenna að halda áfram að vera með þessa síðu ef að enginn les hana;)
En farið vel með ykkur elskurnar og hver dagur skiptir máli því maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér;);*;*
Kv
Anna Björt;*;*
Ég og Heiða mín;*;*
Ég og Steini;*;*
Sædís og Siggi;*;*
Kristín og ég;*;*
Gott að þú minntist á útskriftina það minnti mig á að ég þarf að drullast til að panta gistingu fyrir mig, múttu og Dannyboy.
Gott að þú minntist á útskriftina það minnti mig á að ég þarf að drullast til að panta gistingu fyrir mig, múttu og Dannyboy.
